Argangur 86

14.03.2008 10:34:37 / olo-86

Hittingur

Jæja dúllurnar mínar :-)

Við ætlum að hittast FIMMTUDAGINN 20. mars, sem er sem sagt fimmtudagurinn í næstu viku :haha: ..Ætli það sé ekki bara best að hittast á Höllinni milli kl.18 og 19.?

Getum þá kannski fengið okkur eitthvað í gogginn sem og drukkið smá öl :d

Vonandi mæta sem flestir, því það yrði svo gaman að hittast aðeins :d:d


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 17:34:49 / olo-86

Hittingur um páskana

Jæja krakkar, ég held að við, það er að segja við sem erum game í einhvern hitting verðum að ákveða dag. Það lítur út fyrir að flestir geta komið bara um páskana, svo það er spurning með fimmtudaginn 20. mars (skírdag) eða þá laugardaginn 22. mars??

Við skulum reyna að velja einhvern dag sem allir sem vilja geta komist :d

Svo hvað segir þú?


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 19:34:08 / olo-86

Hún er orðin hundgömul konan

Til hamingju með afmælið Ólöf Elsa :):):haha::haha::):)

Barasta orðin 22ja ára gömul kjellan sem minnir mig auðvitað á það að ég er einnig orðin svona afspyrnu-hund-eld-gömul

En hey, verðum við ekki allar fallegri með hverju árinu? 8) ..ekki að afmælisstelpan hafi ekki verið rooosalega sæt veturinn 1989 haha





En yfir í allt annað. Hvernig væri að allir kommenti hvenær þeir vilja helst hittast????

Anna Lóa sauðhaus ;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 23:23:03 / olo-86

Hittingur?

Ég var að spá. Já svona eiginlega fyrir mig og fleiri sem aldrei koma í fjörðinn fagra til þess eins að njóta þess :d ..hvort við gömlu vinirnir gætum ekki hist? Eins og um páskana eða eitthvað?
Bara sitja á Höllinni, éta pizzu og spjalla?

Bara eitthvað, þarf ekkert að vera eitthvað huges og extra planað, bara hittingur og sprell?

Er einhver game? Það var nú asskoti gaman hjá okkur síðast?










Og bara upp á gamanið þá ætla ég að enda þetta á krúttilegustu myndum í heimi


Ég og Ólöf Elsa í herberginu mínu í Bylgjubyggðinni veturinn 1989!


Ása og Elsa rosalega sætar í snjónum



Ég og Ólöf - krúttilegustu :):)



Endilega segið eitthvað elskurnar, ég sakna ykkar :p

- Anna Lóa

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 11:19:27 / olo-86

Það eru ekki allir búnir að borga!!

Jæja krakkar takk fyrir síðast. Mig langaði bara að minna alla á að borga þátttökugjaldið sem er 2000 fyrir einstaklinga og 2500 fyrir parið. Þeir sem eru í Ólafsfirði geta komið aurunum til Hildar Gyðu eða Ásu en hinir geta sent mér sms og ég svara ykkur með reikningsnúmeri. Sá svo að Anna Lóa er búin að skella sínum m yndum inn á bloggið sitt sem er www.zipfer.blog.is glæsilegar myndir þar á ferð;) Endilega borgiði sem fyrst svo það verði ekkert vesen. Sunna Eir

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 23:49:40 / olo-86

4.dagar í Bekkjarmótið

Jæja elskurnar,,þá er búið að slá þessu öllu niður og plana allt í sambandi við bekkjarmótið á laugardaginn:haha: Við nefndin, eða réttara sagt ég,sunna og Ása hittumst og kláruðum að ræða það sem eftir var að áhveða í sambandi við hvað hver og einn átti að borga og svo framm eftir götunum;) Hérna eru nokkrir punktar um laugardaginn...

-Allir að mæta klukkan 16:00 fyrir utan barnaskólan

-Farið verður í dagskrána og það má engin vita... Kemur á ÓVART:D

-Eftir dagskrána meiga bekkjafélagarnir fara heim og sturta sig á milli klukkan 18:00-19:00

-Mæting klukkan 20:00 uppí skíðaskála þar sem aðal fjörið fer framm:haha: og AUÐVITAÐ fylgja makarnir með ef þeir hafa áhuga;) Þá ætlum við að Grilla og hafa gaman:D

- DJAMM,GLEÐI OG EINTÓM HAMINGJA FRAMM Á NÓTT:haha:

SKOOOOO þetta er þannig að hver og einn mætir með það sem hann vill grilla, Vildum ekki vera að fara kaupa e-hvað eitt til að grilla því sumir borða ekki grillkjöt og þar framm eftir en við sjáum að kaupa allt meðlæti;) Sósur,salat og annað góðgæti...svo mætir hver og einn með sitt áfengi því það er eins með það,sumir drekka ekki bjór bara sterkt og sumir drekka bara léttvín og þannig,,en hver veit nema að e-hvað verður í boði8) Svo er það þáttökugjaldið sem er 2000kr. fyrir okkur sem erum bara ein og 2500kr. fyrir parið,,inní þessu gjaldi er leiguhúsnæðið,meðlætið sem verður með matnum og annað;)

Mætingin er rosa góð og við erum ekkert smá ánægðar hvað liðið er spennt fyrir laugardeginum;) En aftur á móti er líka rosalega leiðinlegt að vita að ekki allir komast:( Myndum vilja hafa alla með... erum 28 í heildina með mökum:haha: Þannig það verður bara stuð og stemming!!

Jæja endilega að kommenta og segja hvernig ykkur líst á þetta sem þið fáið að vita;) thíhíhí...

En er ekki rétt að þessir ætla að mæta??

Ása-Gulli/Hildur-Ingvar/Sigga-Símon/Elsa-Kristó/Stinni-Sólveig/Sylvía-Uni/Harpa María-maki/Gísli Valur-Maki/Sara-Ivar/Anna Lóa-maki

Jón Gunnar,Hjalti,Sæunn,Atli,Hildur,Sunna,Anton,Haukur,Birna???

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 09:28:33 / olo-86

Styttist í stóra daginn...

Jæja núna verðum við að rífa okkur upp á rassinum og fara að plana þetta bekkjarmót almennilega. Við viljum endilega fá fleiri í þessa "nefnd" bæði til að fá hjálp við skipulagningu og líka fá einhver álit á dagskránni. Endilega einhverjir að bjóða sig fram.

Svo væri mjög gott að fá einhverja tölu á fjöldann. Hverjir ætla að koma með maka og hverjir ætla alls ekkert að koma o.s.frv.

Endilega látið í ykkur heyra svo það sé hægt að fara í undirbúning af fullum krafti.

Kv. Sunna Eir


» 17 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 09:56:53 / olo-86

Bekkjarlisti

Hæbz sæta fólk;) Ákvað að leggja smá afmörkum í þesu nefndarstússi sem Sunna er búin að plata mig í;)

En allavega, setti inn lista yfir þá sem hafa verið í '86 árganum á Óló. Þá skipt í þá sem útskrifuðust/fermdust og síðan þá sem hafa einhverntíman verið í bekknum...ATH það gæti vantað einhvern, ef þið takið eftir því þá endilega hendið því nafni inn:) en já var að pæla í að leita af númerunum hjá þessu liði en síðan datt mér það í hug að það vilja kannski ekki allir hafa símanúmerið sitt netinu:$. við gætum þá kannski bara skrifað e-mailið sitt eða eitthvað fyrir aftan nafnið sitt...just a tought;)

En yfir í annað, finnst þessi dagsetning á hittingum góð..og ef þið bara vissuð hvað þessi frábæra nefnd hefur í huga...híhí þá væruð þið að deyja en meira úr spenningi:haha:

P.s Sunna, Hildur og  Ása: Þið eruð úber duglegar í þessu öllu saman;) Stolt af ykkur og gaman að sjá hvað allir eru jákvæðir gagnvart þessu

p.s.s Hlakkar geggjað til að hitta ykkur öll:haha:

Kv. Hafdís HB

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 01:40:08 / olo-86

Hæhæ&hóhó

Jæja þetta er alveg að verða búið að berast HELD ég barasta yfir allan bekkin,,ég er allan vegan búin að vera í kvöld að senda sms sem ég er með númerin hjá:D En alveg æðislegt að allir séu svona hressir yfir því að það eigi að fara halda bekkjarmót í sumar;) Það er nú alltaf talað um 10. ára fermingar afmæli en við áhváðum að vera aðeins örðuvísi og halda það í sumar:)Enda alltof langur tími í það verði 10 ár:| Eða ufff langur...DJÖ ERUM VIÐ ORÐIN GÖMUL:lol::lol: 

Eins og við nefndum hérna í fyrstu færsluni þá ætlum við að stofna nefnd sem verður í því að áhveða þennan skemmtilega dag og hvað verður gert sem AUÐVITA verður hrein&tær snilld8) Ég & Sunna erum alveg með FULLT FULLT að snilldar hugmyndum sem yrðu nú ekki leiðinlegar ef þær kæmust í framkvæmd:!: :þannig endilega krakkar að láta í ykkur heyra ef þið viljið vera með í nefnd???;)og hugmyndir eru sko vel þegnar!! Svo meigiði alveg láta þetta berast á milli ef e-hver skildi verða útundan sem við viljum nú ekki:(;)

Fann ekki númerið hjá Birnu Agnars,Gísla Val,Einari Þór,Jóni Gunnari,Ævari,Sóley Önnu og Krissa!!öll hjálp þegin við að láta þau vita af okkur hérna og láta þau hafa notendanafnið og lykilorðið;)

Kær kveðja Hildur Gyða!!


» 17 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 10:48:28 / olo-86

Allir að svara spurningarlistunum:)

Jæja þá er eg búin ad setja inn spurningarlista. Stal þeim af síðunni hjá árgangi '84:P Endilega allir að fylla þá út. Ég sendi þeim sem ég er með númerið hjá aðgangsorðið af síðunni í sms en þið sem fáið ekkert sms getið sent mér sms og beðið um það. Nr. mitt er 00447901546335. Svo er líka hægt að láta aðgansorðið ganga:)

Eftir innskráningu fer madur inn í síðustjórn og finnur nafnið sitt og klikkar a breyta. Þar setur maður svo inn upplýsingarnar um sig og vistar svo. Ég gleymdi að setja það inn i spurningarlistann en það væri mjog gott að fá símanúmerin líka;) Endilega setjiði líka nýlega mynd af ykkur fyrir neðan:)

Ég setti bara inn spurningarlista fyrir þá sem voru i 10. bekk. Fínt að byrja a því en svo koma hinir inn jafnóðum og þeir gefa sig fram;)

En það er ekki meira i bili..

kv. Sunna Eir


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 22:39:35 / olo-86

Komid ad thvi:)

Jaeja tha er komid ad thvi. Fimm ar sidan vid utskrifudumst ur okkar elskulega GAGGA;) Thad stod alltaf til ad halda bekkjarmot eftir 5 ar and here we are.

Undirbuningurinn er alveg a byrjunarstigi og vid erum ansi minnislausar eins og er thannig ad ekki mogdast ef ykkar nafn vantar a listann. Vitum til daemis ekki um fleiri bloggsidur og born sem hafa komid undir thannig ad allar abendingar eru vel thegnar.

Vid hofum svo verid ad velta thvi fyrir okkur hverjir aettu ad teljast til argangs 86. Eru thad bara their sem klarudu 10. bekk eda bara allir their sem a einhverju timapunkti hafa verid i bekknum? Endilega segid ykkar skodun a thvi mali:)

Vid aetlum svo ad reyna ad hafa bekkjarmotid laugardaginn fyrir sjomannadag eftir ad dagskranni a bryggjunni lykur. Thar sem thad eru nu margir sjomenn i bekknum hentar thessi dagur liklega best. Ef thad eru hins vegar margir sem komast ekki ma alveg athuga adrar dagsetningar. Thetta skyrist allt thegar naer dregur og komid i ljos hverjir aetla ad taka thatt:)

Liklega er best ad skipa bekkjarmotsnefnd thannig ad ef thid sjaid ykkur faert um ad hjalpa til endilega gefid ykkur fram svo vinnan lendi ekki oll a orfaum einstaklingum, strakar thetta er serstaklega til ykkar;) hehe

Annars vonum vid ad thid latid ordidi um thessa sidu berast svo allir fretti nu af thessu og muna ad skilja eftir einhverjar upplysingar, eins og msn eda simanumer svo thad se nu haegt ad sms-a leyniordinu af sidunni a linuna:) A naestu dogum aetlum vid svo ad setja inn spurningarlista sem allir eiga ad svara:)

Bless i bili - Sunna Eir og Hildur Gyda:)


» 16 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 7748